Bókarkápa Betri tjáningar eftir Sirrý

Höfundur níu bóka um samskipti, tjáningu og lífið

Bækur Sirrýjar fjalla um samskipti, örugga tjáningu og viðhorf okkar til lífsins. Þar má finna hagnýt ráð, verkefni og reynslusögur sem hvetja lesendur til að efla sjálfstraust sitt og bæta samskipti í starfi og einkalífi.

Í viðtalsbókunum „Þegar kona brotnar“ og „Þegar karlar stranda“ segir fólk frá erfiðleikum sínum og leiðinni til baka. Sirrý hefur einnig skrifað fjórar myndskreyttar barnabækur. Hér fyrir neðan má kynna sér bækurnar nánar.

Skoða bækurnar

Bækur

Bókarkápa: Betri tjáning

Betri tjáning

Langar þig til að eiga auðveldara með að spjalla við fólk í fjölmenni, sér í lagi þegar þú þekkir fáa? Viltu verða betri í að halda tækifærisræður? Hefurðu áhuga á að læra hvernig hægt er að taka virkari þátt í umræðum á fundum? Finnst þér þú tala of hratt þegar spennan tekur völdin? Hvernig er best að tjá sig á fjarfundum?

Í þessari aðgengilegu bók opnar Sirrý þér sannkallaða verkfærakistu sem eykur þér öryggi í samskiptum og að tjá þig við hvers kyns aðstæður.

Kaupa bók
Bókarkápa: Örugg tjáning – betri samskipti

Örugg tjáning – betri samskipti

Öll þurfum við í einkalífi og starfi að tjá okkur við ókunnuga, stundum jafnvel heilu hópana. Og allir finna einhvern tíma til óöryggis og sviðsskrekks. Þessi bók hjálpar lesandanum að vinna bug á því og öðlast öryggi og færni í samskiptum.

Örugg tjáning er ávísun á betri samskipti og um leið betri líðan, sterkari sjálfsmynd og betri árangur.

„Þessi bók er fyrir alla sem vilja koma skoðun sinni skilmerkilega á framfæri. Sirrý hjálpar á mannamáli – með auðskildum dæmum og einföldum aðferðum.“ — Stefán Jón Hafstein

Kaupa bók
Bókarkápa: Laðaðu til þín það góða

Laðaðu til þín það góða

Sumir virðast ævinlega vera sólarmegin í lífinu og með bros á vör á meðan erfiðleikarnir leita aðra stöðugt uppi. En getur verið að þar vegi aðstæðurnar ekki endilega þyngst heldur viðhorf okkar sjálfra?

Í þessari áhugaverðu og uppbyggilegu bók fjallar Sirrý um fjölmarga þætti daglegs lífs, framkomu okkar hvert við annað og hvaða augum við lítum tilveruna. Textinn er í senn lipur, lifandi og persónulegur og er hér meðal annars að finna upplýsandi reynslusögur, hagnýt verkefni og notadrjúg hollráð.

„Sirrý sýnir okkur hvernig við getum valið að ná öllu því ánægjulega út úr lífinu. Hvetjandi lesning!“ — Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs lífs

Kaupa bók
Bókarkápa: Þegar kona brotnar

Þegar kona brotnar

Íslenskar konur virðast geta axlað mikla ábyrgð og þolað mikið álag - en hvað gerist ef áreynslan verður þeim um megn? Hér eru sagðar sögur kvenna sem kiknuðu undan álaginu en risu aftur upp og standa hnarreistar eftir; einlægar og lærdómsríkar sögur sigurvegara. En hvers vegna buguðust þær? Hvað varð þeim til bjargar? Hver er leiðin til baka eftir brotlendingu vegna kulnunar? Í bókinni er einnig fjallað um konur fyrri tíma, hvernig þær brugðust við örmögnun, og rætt við sálfræðing um hvað gerist þegar kona brotnar og hver bjargráð hennar eru.

Kaupa bók
Bókarkápa: Þegar karlar stranda

Þegar karlar stranda

Kulnun, örmögnun, streita og alvarleg áföll hafa á undanförnum árum gert það að verkum að æ fleiri lenda í ógöngum og hrekjast jafnvel af vinnumarkaði. Og þetta á bæði við um karla og konur.

Karlar tala síður en konur um það hvernig þeim líður. Þeir velja margir hverjir að bíta á jaxlinn og bera harm sinn í hljóði. Sirrý Arnardóttir hefur tekið viðtöl við karlmenn á ólíkum aldri, úr ólíkum áttum og með mismunandi stöðu í samfélaginu og veita þau einstaka innsýn í líf þeirra og líðan. Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa strandað og upplifað verulega vanlíðan. Þeir gátu ekki unnið og voru við það að sökkva. En þeir gripu til aðgerða, fóru að vinna í sínum málum og komust í land.

Kaupa bók

Barnabækur

Bókarkápa: Saga finnur fjársjóð

Fjórar myndskreyttar barnabækur:

  • Saga finnur fjársjóð (og bætir heiminn í leiðinni)
  • Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað
  • Tröllastrákurinn eignast vini
  • Tröllastrákurinn læknar hrekkjusvín

Teiknari: Freydís Kristjánsdóttir. Lesari: Kristján Franklín Magnús (Storytell).

Umfjöllun í Kiljunni á RÚV um bókina Örugg tjáning - Betri samskipti

Horfa á YouTube