Í sviðsljósinu – fjölmiðlaframkoma
Námskeið fyrir þá sem þurfa að geta sett málefni á dagskrá og átt árangursík samskipti við fjölmiðla. Fjallað á hagnýtan hátt í máli og myndum um kröfurnar sem viðmælandi þarf að gera til sín þegar farið er í viðtal og um kröfurnar sem gera má til fjölmiðla.
Rætt um undirbúning, hvað virkar vel og illa, hvað ber að varast. Að takast á við sviðsskrekk og sýna sínar bestu hliðar.
Æfing og upptökur í cameru.
Hafa sambandUmsagnir þátttakenda:
“Sirrý hélt nýlega fjölmiðlaþjálfun fyrir stjórnendur og yfirmenn hjá okkur. Hópurinn samanstendur af reynslumiklum einstaklingum með ólíkan bakgrunn sem hafa meðal annars það hlutverk að koma fram í fjölmiðlum fyrir hönd Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Námskeiðið var skemmtilega uppbyggt með raundæmum úr atvinnulífinu, sérsniðnu efni fyrir okkur og verklegum æfingum fyrir framan myndavél. Öll umgjörð var vönduð, efnið sett fram á skýran og markvissan hátt með góðri tengingu við líðandi stund og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í síbreytilegum heimi fjölmiðlunar.
Sirrý er framúrskarandi kennari, með yfirgripsmikla þekkingu úr fjölmiðlum sem hún miðlar af öryggi, á aðgengilegan og á skemmtilegan hátt. Hún nær einstaklega vel til fólks og skapaði faglegt og jákvætt umhverfi. Námskeiðið stóðst allar væntingar okkar og fengu þátttakendur hagnýt verkfæri sem munu nýtast vel í komandi fjölmiðlaverkefnum.
Sirrý er fagmanneskja sem miðlar efninu á aðgengilegan og skemmtilegan hátt. Námskeiðið var afar vel heppnað og ég mæli heilshugar með því.”
Að setja mál á dagskrá – árangursík samskipti við fjölmiðla
Námskeið um að ná í gegn og kynna málefni, vöru, þjónustu… fyrir þjóðinni í ólíkum fjölmiðlum.
Hugmyndafræðin ,,Tréð” notuð á hagnýtan hátt og nemendur vinna við að setja upp kynningar- og aðgerðaplan fyrir sig og sitt fyrirtæki.
Fyrirlestur, umræður og hópverkefni.
Umsagnir þátttakenda:
,,Námskeiðin „Í sviðsljósinu“ og „Að setja mál á dagskrá“ voru frábær blanda af hagnýtri kennslu, verklegum æfingum og skýrri aðferðafræði. Þau hjálpuðu okkur í KLAK að verða markvissari í samskiptum við fjölmiðla og næmari á tækifæri til að koma sprotunum okkar á framfæri. Ég mæli eindregið með Sirrý.”