Um Sirrý Arnardóttur
„Maður er manns gaman — og allir geta þjálfað sig í að tjá sig af öryggi.“
Eftir 30 ára farsælan feril í fjölmiðlum gerði ég loks aukastarfið að aðalstarfi og vinn nú alveg við stjórnendaþjálfun, fyrirlestrahald, fundarstjórnun, ráðgjöf við almannatengsl og bókaskrif.
Starfsreynsla og menntun
Farsæll og fjölbreyttur ferill í fjölmiðlum í yfir 30 ár
Ég hef stýrt sjónvarps- og útvarpsþáttum, starfað sem ritstjóri og blaðamaður og miðlað reynslu minni áfram í kennslu og ráðgjöf.
Víðtæk reynsla af ráðgjöf í almannatengslum, fundar- og ráðstefnustjórnun
Námskeið, kennsla, stjórnunarstörf og stjórnendaþjálfun fyrir ýmis fyrirtæki og samtök. Meðal annars fyrir: BHM, Háskólann á Bifröst, Ráðhúsið, HÍ, Slökkviliðið, Úrval Útsýn, Kvenlækna, VR, SSF, Sjóvá, Actavis, Samskip, Hjúkrunarfræðinga, Dómstólasýsluna, opinberar stofnanir, stjórnmálaflokka, Landsvirkjun og fleiri og fleiri.
Fundar- og ráðstefnustjóri m.a. fyrir Ríkissáttasemjara, VIRK, Geðhjálp, Landlæknisembættið o.fl.
Fjölbreytt reynsla af stjórnun og leiðsögn:
- Fararstjóri í lífsstílsnámskeiðum á Spáni og Tenerife.
- Framkvæmdastjóri Píeta samtakanna.
Menntun í félags- og fjölmiðlafræði
- Útskrifaðist í Félags- og fjölmiðlafræði frá HÍ.
- Framhaldsnám hjá Saga Communication fjölmiðlasamsteypunni í USA.
Fjölskyldan, hreyfing og andleg næring í frístundum
Þjóðfélagsmál, bókmenntir, leiklist, argentínskur tango, golf, garðyrkja, hreyfing og líkamsrækt. Hef sótt ýmis hugleiðslunámskeið í Oxford.
Er gift og á tvo syni og tengdadætur.
Hlaðvarpsviðtal hjá Snorra Björns
"Fjölmiðlakona til 30 ára, stjórnendaþjálfari, háskólakennari og rithöfundur. Sirrý hefur komið víða við og kennir fólki örugga tjáningu, samskipti og fjölmiðlafærni frá eigin reynslu og framhaldsnámi sem hún sótti hjá bandarískri samsteypu. Hún sagði upp föstu starfi í fjölmiðlum, bjó sér til tækifæri og starfar sjálfstætt í dag."
Hlusta á Spotify