Betri tjáning – örugg framkoma við öll tækifæri
Langar þig til að eiga auðveldara með að spjalla við fólk í fjölmenni, sér í lagi þegar þú þekkir fáa? Viltu verða betri í að halda tækifærisræður? Hefurðu áhuga á að læra hvernig hægt er að taka virkari þátt í umræðum á fundum? Finnst þér þú tala of hratt þegar spennan tekur völdin? Hvernig er best að tjá sig á fjarfundum? Viltu verða öruggari í að halda fyrirlestra á Teams og Zoom? Hvernig kynnirðu þig og hvaða mynd gefurðu af þér? Ertu í ,,Gigg hagkerfinu” og þarft að kunna að koma þér og starfsemi þinni á framfæri?
Byggt á bókinni ,,Betri tjáning – örugg framkoma við öll tækifæri” eftir Sirrý. Útg. Veröld.
Í boði eru námskeið og fyrirlestrar um örugga framkomu við öll tækifæri. Sérhannað fyrir hvern hóp fyrir sig.
Hafið samband og við finnum út hvað hentar ykkur best.
Hafa sambandUmsagnir þátttakenda:
„Ég mæli heilshugar með námskeiðum Sirrýjar í öruggri tjáningu og samskiptum. Hún hefur einstakt lag á að tala beint inn í raunverulegar aðstæður sjúkraliða og annarra fagstétta, með blöndu af fagmennsku, hlýju og húmor. Námskeiðin eru hagnýt, styrkjandi og nýtast jafnt í daglegu starfi, samskiptum við skjólstæðinga sem og í samstarfi og fundum. Þátttakendur fara út með skýr verkfæri og aukið sjálfstraust í tjáningu sinni.“